|  | 6. febrúar 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Greinar og önnur skrif
GREINAR OG ÖNNUR SKRIF
06.desember.2010 - Falleinkun
Þegar ráðherrar ríkisstjórnarinnar tala um að atvinnumálin séu í góðu lagi og að verið sé að greiða fyrir erlendri fjárfestingu í íslensku atvinnulífi, hljómar það eins og órar veruleikafirrts fólks. Alvarlegast er að þau sem þannig tala virðast trúa þessu sjálf og því ekki von á að ástandið sé betra en raun ber vitni.   Nýlega gerði Pricewaterhouse Coopers í Hollandi könnun á viðhorfi og stöðu mála gagnvart beinni erlendri fjárfestingu hé...
Meira...
25.október.2010 - Össur, líttu þér nær
Stóri sannleikur opnaðist nýlega fyrir utanríkisráðherra, Össuri Skarphéðinssyni, að því er fram kom í fréttum í vikunni. Svo virtist sem hann væri farinn að átta sig á því að erlenda fjárfestingu þyrfti í íslensku atvinnulífi. Í Evrópusambands-andakt sinni fór hann yfir reynslu Maltverja, Kýpurbúa, Slóvena og Slóvaka eftir inngöngu þessara þjóða í Evrópusambandið árið 2004. Þar hefði erlend fjárfesting tvöfaldast í kjölfarið og sú fjárfesting h...
Meira...
23.október.2010 - Auðlindin eign þjóðarinnar
Sjávarútvegsráðherra reynir í Mbl í dag að breiða yfir eigin stefnuleysi þegar hann sendir þeim tóninn sem gagnrýna óheiðarleg vinnubrögð hans. Rifjum upp að þessi sami ráðherra talaði um að vinna að sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið, hann setti saman sáttanefnd undir stjórn Samfylkingamannsins Guðbjarts Hannessonar. Nokkuð víðtæk sátt var um svokallaða samningaleið innan sáttanefndarinnar. Þá skyldi ítrekað að auðlindin sé eign þjóðarinnar og a...
Meira...
18.október.2010 - Ferðaþjónusta í uppnámi
Svör íðnaðarráðherra við fyrirspurn minni á þingi í dag voru dæmigerð fyrir ríkisstjórnina. Tillögur fjárlagafrumvarps gera ráð fyrir aukinni skattheimtu á Keflavíkurgflugvelli, skattheimtu sem setur áform Icelandair um meiri umsvif næsta sumar í uppnám. Forráðamenn Icelandair eru nýbúnir að kynna áform um fjölgun véla á næsta ári og fyrirhuguðum ráðningum á allt að 200 manns í tengslum við það. Ríkisstjórnin fagnar áformum þeirra og svarar ...
Meira...
15.október.2010 - Atvinnustefna ríkisstjórnarinnar
Árangur atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar endurspeglast í auglýsingum Vinnumálastofnunar ríkisins og EURES, evrópskri vinnumiðlun. Þar er verið að kynna fólki atvinnutækifæri í Evrópu og hvetja það til að koma sér úr landi. Sérstaklega er höfðað til fólks úr heilbrigðisgeiranum, iðnaðarmanna, verk- og tæknifræðinga. Í þessum kynningum er sennilega að finna skilaboð Ögmundar Jónassonar og fleiri úr Vinstri grænum þegar þau tala um að við verðum að...
Meira...
12.október.2010 - Öngstræti Ögmundar
Það var ámátlegt að horfa á Ögmund Jónasson í ræðustól á Alþingi í vikunni þegar hann var spurður um afstöðu sína til forsendna fjárlagafrumvarpsins. Tilefnið var yfirlýsing ráðherrans um að hann styddi ekki byggingu álvers í Helguvík, en eins og fram hefur komið er bygging þess forsenda hagvaxtarspár fjárlagafrumvarpsins. Ef Ögmundur og félagar koma í veg fyrir að framkvæmdir hefjist í Helguvík innan skamms, eru forsendur frumvarpsins rústir ei...
Meira...
08.október.2010 - Forgangsröðun í þágu þjóðar
Eftir að hafa lofað Alþjóða gjaldeyrissjóðnum að ekki verði lengra gengið í aðgerðum til hjálpar skuldsettum heimilum og tilkynnt það síðan þjóðinni, telur forsætisráðherra sér sæmandi að stíga fram og segja að nú sé tími samráðs loksins runnin upp. Eftir að hafa ítrekað hafnað tilboðum stjórnarandstöðunnar um samráð um þau mál sem brenna á þjóðinni á nú að gera minnihlutann á Alþingi samábyrgan vegna uppgjafar ríkisstjórnarinnar. Svona ganga mál...
Meira...
02.september.2010 - Viðskipti sem orka tvímælis
Kaup Framtakssjóðs lífeyrissjóða á nokkrum fyrirtækjum af Landsbanka Íslands orka mjög tvímælis. Skyldur lífeyrissjóða eru að ávaxta með eins öruggum hætti lífeyrisgreiðslur landsmanna. Við þær erfiðu aðstæður og óvissu sem nú er í íslensku efnahagslífi liggur það í augum uppi að hér er um mikla áhættufjárfestingu að ræða.Ekkert þessara fyrirtækja getur talist sérstaklega þjóðhagslega mikilvægt, enda eru þau öll í samkeppnisrekstri. Í mínum hug...
Meira...
30.ágúst.2010 - Norðlingaölduveita
Enn ein hryggðarmyndin vegna fyrirhugaðra aðgerða ríkisstjórnarinnar blasir nú við okkur. Þrátefli stjórnarflokkanna vegna ólíkrar sýnar á framtíðina hefur leitt af sér kyrrstöðu þrátt fyrir ítrekuð gefin loforð um annað. Aðilar vinnumarkaðarins eru löngu uppgefnir og nokkuð ljóst að ekkert traust mun ríkja milli þeirra og stjórnvalda í komandi kjaraviðræðum. Aldrei sem fyrr hefði þó verið nauðsynlegt að breið samstaða næðist um að útrýma atvinnu...
Meira...
06.júní.2010 - Ræða í Garafarvogskirkju á sjómannadag 2010
Hafið gefur og hafið tekur Sleit marr bönd Minnar ættar Snaran þátt Af sjálfum mér Þetta elsta erfiljóð sem ort hefur verið á íslenska tungu orti Egill Skallagrímsson eftir drukknum Böðvars sonar síns. Frá landnámstíð hefur sjórinn árlega slitið mörg ættarbönd og margan snaran þátt af þjóðinni. Verst var ástandið í fyrri hluta síðustu aldar en þá fórust árlega að jafnaði 70 manns í sjóslysum hér við land, eða 12 af hverjum þúsund sjómönn...
Meira...
13.mars.2010 - Samstada
Auðvitað á að ríkja meiri samstarfsvilji á milli allra flokka á Alþingi. Það hefur lengi verið skoðun sjálfstæðismanna. Þetta á ekki síst við í Ice Save málinu þar sem sést hefur hverju samstaða getur skilað. Í því máli lýstum við því yfir snemma á síðasta ári að við værum tilbúin til að leggja okkar af mörkum með ríkisstjórninni við lausn málsins. Á það var ekki hlustað og því er staðan eins og hún er. Þetta mál hefur tekið alltof langan tíma ...
Meira...
01.mars.2010 - Að komast úr sporunum
ÚR SPORUNUM! Íslensk heimili standa frammi fyrir miklum vanda vegna mikilla skulda og vaxandi atvinnuleysis. Stjórnvöld hafa ekki brugðist við vandanum með til raunverulegum aðgerðum og öll fyrirheit um títtnefnda skjaldborg heimilanna eru tóm. Það verður ekki lengur beðið með að taka á vanda heimila og fyrirtækja sem flestum tilvikum eru fórnarlömb efnahagskreppunnar á Íslandi. Þegar horft er til þeirra leiða sem færar eru, má þó aldrei mis...
Meira...
22.febrúar.2010 - Að kjósa ófrið þó friður sé í boði
Mikil, breið og almenn samstaða er nú orðin um það innan sjávarútvegsins, hjá Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins að fara þess á leit að frumvarp um stjórn fiskveiða sem nefnt hefur verið „skötuselsfrumvarpið“ verði ekki afgreitt frá Alþingi. Varla hefur í aðra tíð myndast svo mikil samstaða á meðal hagsmunasamtaka í sjávarútvegi um beiðni af þessu tagi. Því verður ekki að óreyndu trúað að stjórnarmeirihlutinn virði þessa víðtæku...
Meira...
19.febrúar.2010 - Ekkert kemur af sjálfu sér
Tvær björgunaraðgerðir hafa skilað árangri á Langjökli á skömmum tíma, sem hafa verið afar kröfuharðar og þarfnast björgunarfólks með mikla reynslu, þekkingu og þjálfun. „Í þessu tilfelli þá var vitlaust veður á jöklinum, skyggni frá því að vera ekki neitt upp í þrjá metra, það heyrðist ekki mannsins mál og varla í fjarskiptatækjunum – menn rétt sáu hver annan til að halda sinni leitarlínu,“ segir Jón Gunnarsson alþingismaður og fyrrverandi forma...
Meira...
11.febrúar.2010 - Vanhæf ríkisstjórn
Fyrirsögnin hljómaði hátt í svokallaðri búsáhaldarbyltingu og hafði sín áhrif. Ekki ætla ég að draga fjöður yfir það að ýmislegt hefði betur mátt fara þegar við stóðum frammi fyrir þeim hörmungum sem á okkur dundu á haustdögum 2008. Engin er þar undanskilin í pólitíkinni, hvorki þáverandi ríkisstjórn eða forystumenn þáverandi stjórnarandstöðu. Gott dæmi um slíkt er algjör viðsnúningur fjármálaráðherra í allri sinni nálgun á málið. Alltof mikill...
Meira...
Eldri Greinar