Fréttir | Fréttamiðlun
Þegar ráðherrar ríkisstjórnarinnar tala um að atvinnumálin séu í góðu lagi og að verið sé að greiða fyrir erlendri fjárfestingu í íslensku atvinnulífi, hljómar það eins og órar veruleikafirrts fólks. Alvarlegast er að þau sem þannig tala virðast trúa þessu sjálf og því ekki von á að ástandið sé betra en raun ber vitni.
Nýlega gerði Pricewaterhouse Coopers í Hollandi könnun á viðhorfi og stöðu mála gagnvart beinni erlendri fjárfestingu hér á landi og bar saman við starfsumhverfi hliðstæðrar starfsemi í nokkrum öðrum löndum. Fjölmörg mikilvæg atriði voru tekin til skoðunar og er niðurstaðan alvarlegur áfellisdómur yfir stöðu mála og viðhorfi núverandi stjórnvalda.
M.a. kom fram að skilningur ríkisstjórnar á mikilvægi og stuðningi við beina erlenda fjárfestingu væri verulega ábótavant. Þrátt fyrir áherslur stjórnarsáttmálans á mikilvægi beinnar erlendrar fjárfestingar í atvinnulífinu, væri skortur á skilningi á málefninu og mikill ágreiningur um málið. Bent var á að viðskiptahindranir væru til staðar og vitnað til aðgerðarleysis fjármálaráðuneytisins við að laga rekstrarumhverfi gagnavera hérlendis. Framan af ári voru þau helsta fjöður í hatti Vinstri grænna þegar rætt var um nauðsyn eflingar atvinnulífs. Nú er stórhætta á að þeir erlendu aðilar sem sýnt hafa áhuga á viðskiptum við fyrirhuguð gagnaver hérlendis muni snúa sér annað. Ástæðan er einföld stjórnvöld stuðla ekki að samkeppnishæfu regluverki þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar um annað.
Í skýrslunni kemur fram að stefnumótun gangvart beinni erlendri fjárfestingu er ekki fyrir hendi og hvorki langtímahugsun né forgangsröðun til staðar. Þá var gagnrýnt að fyrirkomulag skipulagsmála dragi verulega úr samkeppnishæfi iðnaðarsvæða, umhverfismat taki of langan tíma og skilgreind iðnaðarsvæði vanti. Ný lög um ívilnanir gangi of skammt og ekki sé mögulegt vegna stefnuleysis stjórnvalda að tryggja orku til verkefna sem talist geta verulega þjóðhagslega hagkvæm.
Gagnrýnt er að fullur stuðningur yfirvalda við lykilstofnanir s.s. fjárfestingastofu sé ekki fyrir hendi, að stjórnsýslan sé veik og sein til svars og ákvarðana. Mörg önnur atriði eru nefnd í þessari skýrslu en þessi upptalning sýnir svo ekki verður um villst af hverju staðan í atvinnulífinu er jafn slæm og raun ber vitni. Alvarlegust er þó sú staðreynd að ekki er hægt að skilja ráðherra ríkisstjórnarinnar öðru vísi en svo að þeir trúi því sjálfir að staðan sé miklu betri en hún er. Lítið gert úr víðtækri gagnrýni á ástandið m.a. frá aðilum vinnumarkaðarins og stjórnarandstöðunni. Svo virðist að skýrslan hafi engin áhrif á stefnu ríkisstjórnarinnar. Ekki er annað að heyra á mönnum eins og Ögmundi Jónassyni og fleirum að hér sé allt á réttri leið og bjart framundan.Staðreyndin er sú að hópur þingmanna VG heldur í raun ríkisstjórninni í gíslingu þegar kemur að hugmyndum um eflingu atvinnulífs.
Nýlega héldu stjórnvöld kynningarfundi í ráðhúsi Reykjavíkur í samvinnu við evrópskar atvinnumiðlanir. Þar var verið að kynna almenningi atvinnutækifæri erlendis, í raun verið að hvetja fólk til að flytja af landi brott. Þegar svo er komið er ekki hægt að túlka það með öðrum hætti en að uppgjöf stjórnvalda sé algjör. Tjónið sem af hlýst fyrir íslenskt samfélag er stórkostlegt og ábyrgð þeirra þingmanna sem verja þessa stefnu eða þetta stefnuleysi er mikil. Við slíkt verður ekki unað lengur. Tækifærin og auðlindir okkar eru til staðar til að blása til sóknar í íslensku atvinnulífi með tilheyrandi verðmætasköpun.
Nafn (skilyrt)
Netfang (skilyrt)
Vefsíða
Láta mig vita með tölvupósti ef fleiri skrá hér athugasemdir.