|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

18. október 2010 ..:: Skoðað 801 sinnum ::..
Ferðaþjónusta í uppnámi
Svör íðnaðarráðherra við fyrirspurn minni á þingi í dag voru dæmigerð fyrir ríkisstjórnina. Tillögur fjárlagafrumvarps gera ráð fyrir aukinni skattheimtu á Keflavíkurgflugvelli, skattheimtu sem setur áform Icelandair um meiri umsvif næsta sumar í uppnám. Forráðamenn Icelandair eru nýbúnir að kynna áform um fjölgun véla á næsta ári og fyrirhuguðum ráðningum á allt að 200 manns í tengslum við það. Ríkisstjórnin fagnar áformum þeirra og svarar með frekari skattlagningu þannig að áformin eru sett í uppnám. Þá kemur ráðherra ferðamála, Katrín Júlíusdóttir, og svarar fyrirspurn minni á þann veg að hún ætli að hitta menn og fara yfir málið. Dæmigert fyrir ríkisstjórnina, skjóta fyrst og spyrja svo. Frétt á Ruv Ráðherra fundar með Icelandair Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og jafnframt ráðherra ferðamála, ætlar að boða forystumenn Icelandair og Isavia á sinn fund til að ræða fyrirhugaðar hækkanir skatta og gjalda á Keflavíkurflugvelli. Þetta kom fram í máli ráðherra á Alþingi fyrir stundu. Fram kom í fréttum okkar í gær að áform Icelandair um fjölgun farþega og starfsfólks á næsta ári væru í uppnámi vegna óvissu um kostnað við lendingagjöld. Sömuleiðis fyrirhugaður skattur á fríhafnarverslun og niðurskurður á framlögum til flugvallarins. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, leitaði eftir viðbrögðum ráðherra sem svaraði með fyrrgreindum hætti.
Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Fastir liðir eins og venjulega, það er ekki flókið að skrifa það leikrit sem fer af stað þegar upplýsingar berast um frekari hvalveiðar okkar. Þessi sami hópur sendiherra hefur reglulega mætt á fund fulltrúa íslensku ríkisstjórnarinnar þegar frekari hvalveiðar eru í vændum.“
Jón Gunnarsson, greinaskrif 13.feb 2009
mars 045