|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

15. október 2010 ..:: Skoðað 1090 sinnum ::.. Greinar og önnur skrif
Atvinnustefna ríkisstjórnarinnar

Árangur atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar endurspeglast í auglýsingum Vinnumálastofnunar ríkisins og EURES, evrópskri vinnumiðlun. Þar er verið að kynna fólki atvinnutækifæri í Evrópu og hvetja það til að koma sér úr landi.

Sérstaklega er höfðað til fólks úr heilbrigðisgeiranum, iðnaðarmanna, verk- og tæknifræðinga. Í þessum kynningum er sennilega að finna skilaboð Ögmundar Jónassonar og fleiri úr Vinstri grænum þegar þau tala um að við verðum að opna hugann og horfa til fleiri átta í atvinnusköpun. Þegar Ögmundur og hans fólk tala um að við Sjálfstæðismenn megum ekki festast í öngstræti og þröngsýni þegar við ræðum um eflingu atvinnugreina sem byggja á náttúruauðlindum okkar, eiga þau með öðrum orðum við það að best sé að koma atvinnulausum úr landi. Félagar hans s.s. Svandís Svavarsdóttir, Jón Bjarnason og fleiri leggja sín lóð á vogarskálarnar til að markmiðið náist sem best.

Það er auðvitað grátlegt til þess að vita að þetta fólk skuli hafa valist til forystu í íslensku samfélagi. En við þær erfiðu aðstæður sem hér sköpuðust varð tímabundið til jarðvegur sem illgresi líkt og Ögmundur og hans lið þrífast vel í.

Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Í ljósi breyttra aðstæðna og þeirrar ákvörðunar Breta að beita hryðjuverkalögum til að knésetja íslenskt efnahagslíf tel ég fulla ástæðu til að fresta komu þeirra hingað til lands, a.m.k. á meðan sú endurskoðun fer fram. Að mínu mati er óásættanlegt að þjóð sem beitir hryðjuverkalögum á Ísland komi hingað til að sinna verkefnum tengdum vörnum landsins.
Jón Gunnarsson, ræða á þingi 11.nóv 2008
Óli Jóh, Jói Fel og Gunnar Bergmann