Fréttir | Fréttamiðlun
Það var ámátlegt að horfa á Ögmund Jónasson í ræðustól á Alþingi í vikunni þegar hann var spurður um afstöðu sína til forsendna fjárlagafrumvarpsins.
Tilefnið var yfirlýsing ráðherrans um að hann styddi ekki byggingu álvers í Helguvík, en eins og fram hefur komið er bygging þess forsenda hagvaxtarspár fjárlagafrumvarpsins. Ef Ögmundur og félagar koma í veg fyrir að framkvæmdir hefjist í Helguvík innan skamms, eru forsendur frumvarpsins rústir einar.
Ögmundur sagði við þetta tækifæri að sjálfstæðismenn hefðu eingöngu eitt auga á miðju enni þegar að atvinnuuppbyggingu kæmi og það auga sæi ekki annað en byggingu álvera til að efla atvinnulífið. Hann nefndi reyndar önnur atriði í umræðunni sem sjálfstæðismenn líta til s.s. ECA verkefnið sem er mjög áhugavert og á annað hundrað störf myndu skapast af. Ögmundur nefndi ekki baráttu okkar fyrir gagnaveri Vern Holding eða stuðning okkar sjálfstæðismanna við uppbyggingu einkasjúkrahúss á gamla varnarsvæðinu. Mikil fjárfesting og atvinna gæti skapast í kringum þessi verkefni sem auka myndi atvinnu og athafnalíf á þessu svæði þar sem atvinnuleysi er mest á landinu og þörfin brýnust.
Ögmundur sagði að við yrðum að „opna hugann, aðrar lausnir í atvinnumálum væru til“. Þau verkefni sem hér hafa verið talin upp, þ.e. gagnaver, ECA verkefnið, uppbygging einkasjúkrahúss sem þjónaði fyrst og fremst erlendum sjúklingum og álver í Helguvík eru öll á vonarvöl vegna aðgerða og aðgerðarleysis vinstri ríkisstjórnar Ögmundar Jónassonar sem reyndar sýnir atvinnulífinu oft á tíðum hreinan fjandskap. Enda treysta hvorki samtök vinnuveitenda né launþega ríkisstjórninni fyrir næsta húshorn. Mætti þar t.d. rifja upp örlög „stöðugleikasáttmálans“ sem ríkisstjórnin margsveik.
Þessi ríkisstjórn ber fulla ábyrgð á því alvarlega atvinnuleysi sem er á svæðinu sem og því vaxandi atvinnu- og athafnaleysi sem breiðist nú út um allt land.
Atvinnuleysisstefna Vinstri grænna er svo sem vel kunn. Hún hljómar einfaldlega þannig að það eigi að opna hugann, horfa til allra átta og nýta þau tækifæri sem (eftir því sem þau segja) liggja hvarvetna á lausu. Það er reyndar enginn annar sem virðist sjá þessi tækifæri og engin frekari skýring fæst frá Ögmundi eða hans liði um hvað átt er við þegar spurt er.
Hann sagði í umræðunni „sjálfsögðu vil ég hagvöxt, en bara með fyrirhyggju“. Það er þessi meinta „fyrirhyggja“ Vinstri grænna sem er að drepa hér allt athafnalíf. Ögmundur Jónasson og félagar hafa sýnt þá „fyrirhyggju“ að koma þjóðfélagi okkar í öngstræti.
Nær væri af Ögmundi og hans liði að sýna fólki þá umhyggju að segja af sér áður en í enn frekara óefni er komið og hætta að þvælast fyrir og torvelda uppbyggingu í atvinnulífinu sem við þörfnumst svo mjög, landsmenn allir.
Nafn (skilyrt)
Netfang (skilyrt)
Vefsíða
Láta mig vita með tölvupósti ef fleiri skrá hér athugasemdir.