|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

6. júní 2010 ..:: Skoðað 815 sinnum ::.. Greinar og önnur skrif
Ræða í Garafarvogskirkju á sjómannadag 2010
Hafið gefur og hafið tekur Sleit marr bönd Minnar ættar Snaran þátt Af sjálfum mér Þetta elsta erfiljóð sem ort hefur verið á íslenska tungu orti Egill Skallagrímsson eftir drukknum Böðvars sonar síns. Frá landnámstíð hefur sjórinn árlega slitið mörg ættarbönd og margan snaran þátt af þjóðinni. Verst var ástandið í fyrri hluta síðustu aldar en þá fórust árlega að jafnaði 70 manns í sjóslysum hér við land, eða 12 af hverjum þúsund sjómönnum. Versta árið var 1906 þegar 123 karlmenn drukknuðu. Það er sambærilegt við það að um 400 manns drukknuðu á einu ári við Ísland nú til dags. Það er í raun með ólíkindum að þjóðin skuli hafa komist í gegnum þessar miklu fórnir sem sjómenn okkar og fjölskyldur þeirra færðu til að halda lífi hér við norðurhjara veraldar. Oft voru heilu byggðarlögin í miklum sárum sem langan tíma tók að græða, að því marki sem hægt var. Á þessum árum var lagður grunnur að því öfluga björgunar- og slysavarnarstarfi sem breytt hefur öllu fyrir þjóðina og þá ekki síst okkar duglegu sjómenn og fjölskyldur þeirra. Árið 1928 var Slysavarnarfélag Íslands stofnað og þar hófst hin merkilega saga sjálfboðliðastarfs björgunarsveita okkar sem á sér vart dæmi um víða veröld. Stuðningur trúarinnar og máttur bænarinnar var og er traust haldreipi sjómanna og björgunarfólks. Í aldir var sá styrkur sem sjómenn okkar sóttu í trúna á Jesús Krist og bænina grundvöllur hugrekkis þeirra. Sr. Oddur V. Gíslason var frumkvöðull í slysavarnarmálum sjómanna. Sjóferðabæn hans frá því í lok 19 aldar er varðveitt meðal sjómanna. Drottinn minn og Guð minn. Þegar ég nú ræ til fiskveiða og finn vanmátt minn og veikleika bátsins gegn huldum kröftum lofts og lagar, þá lyfti ég upp til þín augum trúar og vonar og bið þig í Jesú nafni að leiða oss á djúpið, blessa oss að vorum veiðum og vernda oss, að vér aftur farsællega heim til vor náum með þá björg sem þér þóknast að gefa oss. Blessa þú ástvini vora, og leyf oss að fagna aftur samfundum svo vér fyrir heilags anda náð samhuga flytjum þér lof og þakkargjörð. Ó, Drottinn. Gef oss öllum góðar stundir, skipi og mönnum í Jesú nafni. Mig langar að vitna í sögu af Þorsteini Þorsteinssyni fyrrum formanni Slysavarnarfélagsins. „Það skall á ofsanorðanrok þegar ég var staddur á skipi mínu Georg ekki allangt frá landi á Húnafóla með um 4000 fiska á dekki. Sjólag var aldeilis ógurlegt í heilan sólarhring svo að mér fór ekki að standa á sama. Ég hef aldrei komist í aðra eins lífshættu og raun eins og þessa. Ég vissi að við lítilsháttar bilun væri allt búið. Í bænum mínum hét ég þess að ef mér tækist að bjarga mér og mínum góðu mönnum skyldi ég einhvern tíma, þó síðar yrði á lífsleiðinni, leggja lið björgunarstarfsemi og bættu öryggi sjómanna í einhverri mynd“. Þorsteinn varð síðan formaður félagsins og gaf fyrsta björgunarskip þess Þorstein. Aðstæður og búnaður björgunarfólks hafa tekið miklum framförum. Það er þjóðinni ljúf skylda að standa vörð um öfluga starfsemi björgunarsveita okkar. Það er björgunarfólkinu mikil hvatning að finna fyrir þeim góða þakkarhug sem þjóðin sýnir í verki með stuðningi sínum þegar til hennar er leitað. Sjómenn og fjölskyldur þeirra eiga það skilið að hvergi sé hvikað frá öryggiskröfum. Það eru mannslíf í húfi. Það má aldrei gleymast að sjómenn eiga fjölskyldur og vini í landi sem stöðugt eru að hugsa til þeirra í stundum langri fjarveru. Mig langar að deila með ykkur einni dæmisögu: Það er Hannes Þ. Hafstein fv. Forstjóri Slysavarnarfélagsins sem segir frá. „ Ég minnist margra gleðilegra stunda hjá okkur á Tilkynningarskyldunni þegar við gátum fært fólki góðar fréttir. Sem dæmi um slíkt má nefna eitt vetrarkvöld frá fyrstu árum skyldunnar. Hið versta norðanveður hafið brostið á nokkuð skyndilega. Við vissum að bátar voru úti fyrir norðurlandi. Um miðnætti höfðu þrír bátar ekki komist í landvar. Ég fór því í skylduna til að vera vaktmanninum til aðstoðar og þegar ég kom þangað var mér sagt að ungur drengur hringdi með reglulegu millibili til að spyrjast fyrir um einn þessara báta. Við fylgdumst með bátunum í gegnum Siglufjarðarradíó, en haugasjór var á þeim slóðum sem þeir voru. Þegar ég hafði verið þarna um nokkra stund hringdi drengurinn enn einu sinni og notaði ég þá tækifærið og spjallaði við hann og spurði hvers vegna hann væri alltaf að hringja. „Hann pabbi minn er um borð í bátnum“ sagði hann og mátti glögglega greina áhyggjur í röddinni. Ég sagði honum að vera rólegum. Allt væri í lagi um borð og ég myndi hafa samband þegar bátarnir kæmust í landvar. Nokkru síðar fengust þær fréttir að bátarnir hefðu komist heilu og höldnu í var við Skagaströnd og þá hringdi ég strax í drenginn til að færa honum fréttirnar. Gleymi ég aldrei þegar hann gaf frá sér andvarp af feginleik og sagði síðan: „Það er gott, þá get ég rólegur farið að sofa“. Sjávarútvegur, sjómenn og fiskvinnslufólk leggja með framlagi sínu grunn að því samfélagi sem við byggjum. Þjóðin stendur í þakkarskuld við sjómannastéttina og fjölskyldur þeirra. Á fána sjómannadagsráðs er á sjómannadaginn sett stjarna til minningar um hvern þann sjómann sem látið hefur lífið til sjós á milli sjómannadaga. Markmið okkar er að á fánanum sé engin stjarna. Það markmið náðist á sjómannadaginn í fyrra en í ár eru tvær stjörnur til minningar tvo sjómenn sem látist hafa frá síðasta sjómannadegi. Þann 16. desember sl. fórst Guðmundur Sesar Magnússon 57 ára þegar bátur sem hann var á ásamt tengdasyni sínum, Börkur frændi, hvolfdi við skerið Brökur undan Skrúð. Fjórum mánuðum síðar eða 17. apríl lést Guðmundur Kristinn Steinsson 31 árs af slysförum eftir að hann féll fyrir borð af togaranum Hrafni GK þar sem skipið var að veiðum á SV miðum. Það eiga margir við sárt að binda, ættingjar, vinir og skipsfélagar. Beðið er fyrir þeim, fjölskyldum þeirra og skipsfélögum um allt land í dag. Á sjómannadaginn biðjum við sjómönnum og fjölskyldum þeirra blessunar. Við biðjum Guð að blessa mikilvæga starfsemi Slysavarnarskóla sjómanna, sem Grettistaki hefur lyft í öryggismálum sjómanna. Við biðjum blessunar guðs því félagsstarfi björgunar-og slysavarnarfólks sem svo áþreifanlega lifir í lífrænu starfi í samræmi við hina hæstu hugsjón mannkærleika á öllum sviðum. Sjómenn til hamingju með daginn.
Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Þau halda ekki þessi rök um ferðaþjónustu sem hóf upp hérna kvartanir sínar árið 2003 og hefur var talað með sama tón öll árin og allt hefur átt að fara hér fjandans til. Hvað hefur gengið eftir af þessum skoðunum? Það hefur ekkert gengið eftir. Þjóðin hefur líka talað ítrekað í þessu máli, nú síðast í skoðanakönnun þar sem 70% fylgi er með hvalveiðum Íslendinga.
Jón Gunnarsson, ræða á þingi 23.maí 2008
Gunnar Birgisson og Kristján Loftsson