|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

8. október 2010 ..:: Skoðað 993 sinnum ::.. Greinar og önnur skrif
Forgangsröðun í þágu þjóðar

Eftir að hafa lofað Alþjóða gjaldeyrissjóðnum að ekki verði lengra gengið í aðgerðum til hjálpar skuldsettum heimilum og tilkynnt það síðan þjóðinni, telur forsætisráðherra sér sæmandi að stíga fram og segja að nú sé tími samráðs loksins runnin upp. Eftir að hafa ítrekað hafnað tilboðum stjórnarandstöðunnar um samráð um þau mál sem brenna á þjóðinni á nú að gera minnihlutann á Alþingi samábyrgan vegna uppgjafar ríkisstjórnarinnar. Svona ganga mál einfaldlega ekki fyrir sig.

Sjálfstæðismenn hafa lagt til að allt aðrar leiðir væru farnar í grundvallarmálum; í skattlagningu, í uppbyggingu atvinnulífs, nauðsynlegum aðgerðum fyrir venjuleg heimili, lausn Ice Save og svo má lengi telja. Engum vafa er undirorpið að ef einhverjar þessara leiða hefðu verið farnar væri staðan í íslensku samfélagi allt önnur og betri en hún er í dag. Stefna ríkisstjórnarinnar er gjaldþrota og þolinmæði almennings á þrotum. Ríkisstjórnin hlýtur ein að axla ábyrgð á því að ástandið hefur snarversnað frá því hún tók til við. Nú verður að breyta um stefnu og til þess þarf að koma til nýtt meirihlutasamstarf á Alþingi. Það er á ábyrgð alþingismanna að koma á starfhæfri ríkisstjórn. Sú ábyrgð liggur fyrst og fremst hjá þingmönnum stjórnarflokkanna. Þeir ráða því hvort haldið verði áfram vonlausri afturhalds- og landeyðingarstefnu með tilheyrandi óeiningu þessara stjórnarflokka, eða hvort blásið verði til sóknar í íslensku samfélagi.

Ný ríkisstjórn á að hafa takmarkaðan starfstíma og einbeita sér að fáum grundvallarmálum. Þau mál snúa að velferð heimila, eflingu atvinnulífs, aukinni fjárfestingu í íslensku atvinnulífi, erlendri sem innlendri og fráhvarfi frá skattpíningarstefnu núverandi ríkisstjórnar. Allt annað á að leggja til hliðar í störfum Alþingis við núverandi aðstæður. Alþingi á að breyta vinnubrögðum sínum og skipuleggja nefndarstarf sitt eftir þessum verkefnum og starfa þannig með ríkisstjórn að því að koma á nauðsynlegum breytingum.

Þjóðin sendir okkur neyðarkall enn og aftur. Ef alþingismönnum er í raun annt um eigin virðingu og virðingu þjóðarinnar og tiltrú á Alþingi þá verða þeir að svara þessu kalli. Hvernig er hægt að réttlæta milljarða kostnað við verkefni á borð við stjórnlagaþing, aðildarviðræður við Evrópusambandið og fleiri slík mál, þegar ekki er hægt að brauðfæða þjóðina, sjá henni fyrir nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og traustu menntakerfi? Hvernig er hægt að réttlæta þann kostnað og á sama tíma skera niður barnabætur til þeirra þjóðfélagshópa sem verst standa, skera niður framlög til eldri borgara, öryrkja og loka heilbrigðisstofnunum um allt land. Þetta sýnir e.t.v. fullkomna veruleikafirringu þeirra sem nú forgangsraða með þessum hætti. Hér verður að snúa við blaði og forgangsraða í þágu þjóðarinnar.

Stórkostlegt atvinnuleysi er okkar mesta böl á þessum erfiðu tímum og nú boðar ríkisstjórnin aukið atvinnuleysi meðal fjölmennra stétta opinberra starfsmanna á sama tíma og fyrir liggur að engar væntingar eru um að hinn almenni markaður muni bæta við starfsfólki á komandi mánuðum.

Undirritaður var í Taiwan fyrir stuttu. Það var mjög áhugavert að heyra hvernig brugðist var við miklu áfalli útflutningsgreina og stórkostlegri aukningu atvinnuleysis á þeim bæ. Það var gert með því að fara þær leiðir sem við sjálfstæðismenn höfum lagt til að farnar verði hérlendis. Skattstofnar voru efldir með því að lækka skatta á fyrirtæki, gefa sérstakan skattaafslátt vegna nýfjárfestinga í atvinnulífi, greiða fyrir erlendri fjárfestingu og bjóða upp á neysluhvetjandi leiðir fyrir almenning. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Hagvaxtaraukning á þessu ári er 10% og atvinnuleysi sem fór úr innan við 2% í 7 % er komið í 5,4 %. Forsætisráðherra Taiwan lofaði þjóð sinni að hverfa frá störfum tækist ekki aðkoma atvinnuleysinu niður fyrir 5 % fyrir árslok.

Það er kominn tími til að Alþingi sýni nú loks ábyrgð í störfum sínum og að þingmenn forgangsraði upp á nýtt. Það gerum við með því að mynda nýja ríkisstjórn sem hefur takmarkaða verkefnaskrá og takmarkaðan tíma til að vinna úr þeim málum. Leggjum síðan verk okkar í dóm þjóðarinnar næsta vor.

Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Það má segja að vorboðarnir svokölluðu í hvalveiðimálunum séu komnir á kreik, reyndar nokkuð seint á ferðinni þetta vorið enda hefur æti þeirra verið rýrt á undanförnum árum.
Jón Gunnarsson, ræða á þingi 16.apr 2008
fis_jon