|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

30. ágúst 2010 ..:: Skoðað 1062 sinnum ::.. Greinar og önnur skrif
Norðlingaölduveita

Enn ein hryggðarmyndin vegna fyrirhugaðra aðgerða ríkisstjórnarinnar blasir nú við okkur. Þrátefli stjórnarflokkanna vegna ólíkrar sýnar á framtíðina hefur leitt af sér kyrrstöðu þrátt fyrir ítrekuð gefin loforð um annað. Aðilar vinnumarkaðarins eru löngu uppgefnir og nokkuð ljóst að ekkert traust mun ríkja milli þeirra og stjórnvalda í komandi kjaraviðræðum. Aldrei sem fyrr hefði þó verið nauðsynlegt að breið samstaða næðist um að útrýma atvinnuleysi með því að ráðast í brýn verkefni. Slíkt virðist vera útilokað á meðan Samfylking og Vinstri grænir eru við völd, slík er gjáin á milli þeirra í skoðunum að allt endar með ónýtum málamiðlunum. Iðnaðarnefnd Alþingis átti merkilegan fund með iðnaðar- og umhverfisráðherra ásamt fulltrúum Landsvirkjunar og sveitarfélaga á því svæði sem liggur að fyrirhugaðri Norðlingaölduveitu. Í stuttu máli voru ráðherrarnir sammála um að stækka friðlandið sem kennt er við Þjórsárver, en það nær reyndar langt út fyrir það svæði. Á meðan iðnaðarráðherra sagði að stækkunin hefði ekkert með orkunýtingu svæðisins að gera sagði umhverfisráðherra að ljóst væri að ekkert yrði af Norðlingaölduveitu þegar stækkunin yrði samþykkt. Forstjóri Landsvirkjunar fullyrti að fyrirhuguð nýting svæðisins væri hagkvæmasti virkjunarkostur sem völ væri á. Verkefnið snýr að því að nýta þær virkjanir sem fyrir eru á Tungnársvæðinu. Umhverfisáhrif væru þau minnstu sem fylgt gætu virkjanaframkvæmdum. Aðeins um 0,2 ferkílómetrar lands fara undir vatn. Aflið sem næðist með nýtingu svæðisins væri svipað og það sem nást mun í Búðarhálsvirkjun en kostnaður nemur eingöngu ríflega 60 % af kostnaðaráætlun við þá virkjun. Fulltrúar sveitarfélagana á svæðinu komu af fjöllum þegar þeir heyrðu af áformum umhverfisráðherra. Þeir sögðu nefnd að störfum sem skila ætti tillögum að stækkun friðlandsins og spurðu hvað sú nefnd ætti að gera nú? Það kom einnig fram í máli þeirra að stækkun til suðurs hefði lítinn tilgang, frekar ætti að horfa til stækkunar norðurs. Á fundinum kom einnig fram hjá umhverfisráðherra að samráð við sveitarfélög væri það sem mest væri krefjandi vegna friðunar landsvæða. Hún sagði aukið samráð nauðsynlegt og má þar segja að batnandi mönnum sé best að lifa, því helst var hún gagnrýnd af sveitarfélögum fyrir lítið eða ekkert samráð við gerð náttúruverndaráætlunar sem samþykkt var á Alþingi sl. vetur. Við blasir að nú á að koma í veg fyrir að nýttur verði hagkvæmasti og umhverfisvænsti virkjanakostur í landinu. Allt í þágu þess að halda friðinn á ríkisstjórnarheimilinu. Svo er sett ofan í við þingmenn sem kalla vinnubrögð sem þessi skemmdarverk. Ábyrðarleysi þessa fólks er algjört og afleiðingarnar stefna í að verða skelfilegar fyrir íslenskt samfélag. Hér verður að breyta um stefnu. Það verður aðeins gert með því að fleygja mannskapnum í brúnni fyrir borð.

Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Á þeim forsendum eigum við að tilkynna Dönum að við viljum fresta komu flugsveita þeirra hingað í næsta mánuði. Við eigum einnig að nota tækifærið og endurskoða á hvaða forsendum við viljum leggja okkar af mörkum innan varnarbandalagsins. Íslendingar eru ekki og verða ekki hvervædd þjóð og því eigum við að horfa mest til borgaralegra verkefna þar sem þekking okkar og reynsla kemur best að notum.
Jón Gunnarsson, greinaskrif 23.feb 2009
fjolskyldan (4)