|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

2. september 2010 ..:: Skoðað 1050 sinnum ::.. Greinar og önnur skrif
Viðskipti sem orka tvímælis

Kaup Framtakssjóðs lífeyrissjóða á nokkrum fyrirtækjum af Landsbanka Íslands orka mjög tvímælis.

Skyldur lífeyrissjóða eru að ávaxta með eins öruggum hætti lífeyrisgreiðslur landsmanna. Við þær erfiðu aðstæður og óvissu sem nú er í íslensku efnahagslífi liggur það í augum uppi að hér er um mikla áhættufjárfestingu að ræða.Ekkert þessara fyrirtækja getur talist sérstaklega þjóðhagslega mikilvægt, enda eru þau öll í samkeppnisrekstri.

Í mínum huga gilda önnur rök fyrir fjárfestingu í Icelandair sem er samfélagslega mjög mikilvægt fyrirtæki og áríðandi halda því í íslenskri eigu. Áleitnar spurningar vakna um aðkomu ríkisins í gegnum Landsbankann og lífeyrissjóði að rekstri þessara fyrirtækja. Öll eru þau í harðri samkeppni og full ástæða til að óttast samkeppnisumhverfið á þeim markaði sem þessi fyrirtæki starfa á.Rekstur þeirra hlýtur að vera mjög áhættusamur, sérstaklega við þær aðstæður sem nú eru uppi.

Markmið eigenda hlýtur að vera að hámarka hagnað þeirra fyrirtækja sem þeir fjárfesta í. Í þessu tilfelli eru kaup fyrirtækjanna fjármögnuð með lífeyrisgreiðslum frá samkeppnisaðilum á markaði sem vekur upp siðferðislegar spurningar um hvort hér hafi stjórnir lífeyrissjóða ekki farið út fyrir velsæmis- og skynsemismörk gagnvart umbjóðendum sínum.

Að mínu mati eiga lífeyrissjóðir ekki að vera meirihlutaeigendur og rekstraraðilar fyrirtækja. Þeir geta verið kjölfestufjárfestar sem hafa ekki endilega langtímafjárfestingu að markmiði. Við þær aðstæður sem uppi eru í íslensku samfélagi er þröngt um augljósa góða fjárfestingakosti. Þó er það þannig að fyrirtæki í almannaeigu, eins og Landsvirkjun og fleiri, eru í viðræðum um fjármögnum stórra verkefna á borð við Búðarhálsvirkjun.

Ekkert mun setja meiri kraft í atvinnulíf landsmanna en nýting auðlinda, þ.m.t. virkjanakosta, til eflingar atvinnulífinu. Skýrt hefur komið fram að mikil eftirspurn er eftir orku frá erlendum stórfyrirtækjum. Arðsemi virkjana fyrir stóriðju hefur verið mjög góð á Íslandi og augljóst að þar væri sjóðum landsmanna vel varið til fjárfestinga. Slíkar fjárfestingar sýndu líka erlendum aðilum getu okkar hér til að fjármagna framkvæmdir sjálf í stað þess að þurfa leita út fyrir landsteinana. Það myndi auka tiltrú á íslensku efnahagslífi og hafa í för með sér aukið traust á getu okkar til að vinna á aðsteðjandi vandamáli á eigin forsendum.

Eftir þessa ákvörðun Framtakssjóðs lífeyrissjóðanna verður sú spurning áleitin hvort eðlilegt sé að lífeyrissjóðirnir skipi stjórnarmenn í fyrirtækjunum sem fjárfest er í. Það er nauðsynlegra en áður að slíta á öll slík tengsl og lágmarka þannig hættuna á hagsmunaárekstrum. Mikilvægt er að koma þessum fyrirtækjum sem hér um ræðir í opið söluferli sem fyrst. Þá kæmi einnig í ljós hversu skynsamleg þessi fjárfesting er.

Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Á þeim forsendum eigum við að tilkynna Dönum að við viljum fresta komu flugsveita þeirra hingað í næsta mánuði. Við eigum einnig að nota tækifærið og endurskoða á hvaða forsendum við viljum leggja okkar af mörkum innan varnarbandalagsins. Íslendingar eru ekki og verða ekki hvervædd þjóð og því eigum við að horfa mest til borgaralegra verkefna þar sem þekking okkar og reynsla kemur best að notum.
Jón Gunnarsson, greinaskrif 23.feb 2009
Frá opnun skrifstofu