|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

19. febrúar 2010 ..:: Skoðað 1085 sinnum ::..
Ekkert kemur af sjálfu sér
Tvær björgunaraðgerðir hafa skilað árangri á Langjökli á skömmum tíma, sem hafa verið afar kröfuharðar og þarfnast björgunarfólks með mikla reynslu, þekkingu og þjálfun. „Í þessu tilfelli þá var vitlaust veður á jöklinum, skyggni frá því að vera ekki neitt upp í þrjá metra, það heyrðist ekki mannsins mál og varla í fjarskiptatækjunum – menn rétt sáu hver annan til að halda sinni leitarlínu,“ segir Jón Gunnarsson alþingismaður og fyrrverandi formaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar til margra ára. „Þetta reynir ofboðslega á þolrif manna.“ Hann segir björgunarsveitarmenn hafa gert sér grein fyrir því, að ef mæðginin fyndust ekki um kvöldið eða nóttina, þá benti flest til að þau lifðu ekki af. „Auðvitað var heppnin með þegar þeir keyrðu fram á þau, en það var engin tilviljun. Þeir vita að eina leiðin til að finna þau er með þessum hætti. Reynslan og þjálfunin skilaði sér, enda er þessi mannskapur nokkurskonar sérsveitarlið björgunarsveitanna. Fjöldinn allur af reyndum sleðamönnum hefði gefist upp fyrir veðri og aðstæðum, eins og þeim sem voru á jökli er mæðginin fundust, en þessir menn héldu leitinni áfram.“ Hann segir að góður tækjabúnaður hjálpi líka til, sem hafi eflst gríðarlega á tveimur áratugum. Sem dæmi má nefna að snjóbílum fjölgaði mikið í eigu björgunarsveitanna eftir átak sem farið var í árið 2004 þegar keyptir voru, frá sænska hernum, notaðir snjóbílar sem fóru um allt land. Þeir eru nauðsynlegir við svo erfiðar aðstæður sem voru á jöklinum í þetta sinn, en þeirra hlutverk er m.a. að vera bækistöð og skjól fyrir leitarmenn og til að hlúa að þeim sem týndir voru. „Þegar drengnum var bjargað úr sprungunni á Langjökli, sem var mjög mjó þar sem hann lá, fór björgunarsveitarmaðurinn niður með höfuðið á undan sér til að bjarga. Þetta var í kolniðamyrkri og hann aðeins með hjálmljós. Það mátti ekki tæpara standa við þá björgunaraðgerð“. Aftur reyndi mjög á þolrif björgunarmanna, þjálfun þeirra og reynslu. Þegar sagt er að mikil heppni hafi verið að mæðginin fundust á jöklinum er eitthvað til í því. En það kemur ekkert að sjálfu sér og í þeim tilfellum sem hér um ræðir var það fyrst og fremst þrotlaust þjálfun, mikil reynsla björgunarfólksins og hugrekki ásamt góðum búnaði sem skilaði þessum ánægjulega árangri.
Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Fastir liðir eins og venjulega, það er ekki flókið að skrifa það leikrit sem fer af stað þegar upplýsingar berast um frekari hvalveiðar okkar. Þessi sami hópur sendiherra hefur reglulega mætt á fund fulltrúa íslensku ríkisstjórnarinnar þegar frekari hvalveiðar eru í vændum.“
Jón Gunnarsson, greinaskrif 13.feb 2009
mars 052