|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

11. febrúar 2010 ..:: Skoðað 1031 sinnum ::..
Vanhæf ríkisstjórn
Fyrirsögnin hljómaði hátt í svokallaðri búsáhaldarbyltingu og hafði sín áhrif. Ekki ætla ég að draga fjöður yfir það að ýmislegt hefði betur mátt fara þegar við stóðum frammi fyrir þeim hörmungum sem á okkur dundu á haustdögum 2008. Engin er þar undanskilin í pólitíkinni, hvorki þáverandi ríkisstjórn eða forystumenn þáverandi stjórnarandstöðu. Gott dæmi um slíkt er algjör viðsnúningur fjármálaráðherra í allri sinni nálgun á málið. Alltof mikill tími og kraftur hefur farið í Ice save málið og sorglegast að ekki skyldi hafa náðst breiðari samstaða um það mál innan þings og meðal þjóðar. Sviðið hefur verið svo upptekið af þessu máli að önnur miklu mikilvægari mál hafa fallið í skuggann. Alvegarlegasta meinsemd í íslensku samfélagi í dag er staða atvinnuveganna og það mikla atvinnuleysi sem af því skapast. Við getum velt fyrir okkur lausnum á vanda heimilanna, sem ég geri ekki lítið úr, en þær falla allar um sjálfa sig ef hjólum atvinnulífsins verður ekki hjálpað úr því foraði sem þau sitja föst í. Allir sem fjalla um viðreisn íslensk samfélags eru sammála um að tækifæri okkar liggi í eflingu atvinnulífs þar sem auðlindir til lands og sjávar eru nýttar með skynsamlegum hætti. Núverandi ríkisstjórn hefur tekið undir þetta og iðnaðarráðherra, ásamt fleirum þar á bæ, hefur talað hátt um öll þau tækifæri sem framundan eru og vitnar þar til þeirra viðræðna sem stjórnvöld hafa átt við áhugasama erlenda aðila. En vinstri mönnum virðist ekki sjálfrátt þegar kemur að málefnum atvinnulífsins. Á sama tíma og svo nauðsynlegt er að gera allt því til eflingar keppast þau við að leggja steina og þröskulda í veg fyrir mögulegar framkvæmdir. Dæmin sanna þetta svo ekki verður um villst. Það er ágætt til áminningar að rifja upp þau helstu á undanförnum misserum. Komið var í veg fyrir stækkun álversins í Straumsvík undir forystu vinstri manna í Hafnarfirði, þáverandi umhverfisráðherra samfylkingarinnar kom í veg fyrir að uppbygging á Bakka við Húsavík fengi eðlilegan framgang, norskt fyrirtæki hafði hug á verksmiðjubyggingu við Þorlákshöfn en fékk engin svör um hvenær hægt yrði að afhenda umbeðna orku og snéri sér annað, verkefni á suðurnesjum voru sett í uppnám með öllum þeim ráðum sem ráðherra mögulega hafði og nú er síðasta útspil umhverfisráðherra VG að ganga gegn vilja heimamanna á Þjórsársvæðinu vegna mögulegra virkjana þar. Afleiðingar þeirrar ákvörðunar liggja í orðum forstjóra Landsvirkjunar þegar hann tilkynnti að þar með yrðu þeir að hætta viðræðum við áhugasama orkukaupendur. Einhverjar þessara ákvarðana eru jafnvel taldar stangast á við stjórnsýslulög en, þannig að öllum ráðum er beitt, tilgangurinn helgar meðalið. Hvað sem mönnum finnst um ákveðin atriði í aflamarkskerfi okkar í sjávarútvegi þá er íslenskur sjávarútvegur talin einhver sá hagkvæmasti í heimi. Á meðan aðrar þjóðir styrkja sjávarútveg sinn stórkostlega vegna félagslegra þátta þá skilar sjávarútvegur hérlendis miklum þjóðhagslegum hagnaði. Undir stöðugum hótunum um illa útfærðar breytingar á kerfinu fjarar nú undan sjávarbyggðum landsins. Stutt er í að rekstur margra lítilla og meðalstórra útgerða stöðvist vegna ástandsins. Það er ávísun á enn frekara atvinnuleysi og gjaldþrot í þessari grundvallaratvinnugrein okkar. Svo mikið er ríkisstjórninni í mun að gera breytingar breytinganna vegna að þeim sést ekki fyrir og halda til streitu ófærum hugmyndum sínum á meðan allir hagsmunaaðilar hafa sæst á að setjast niður og reyna að finna sáttagrundvöll til breytinga á kerfinu. Nær væri mönnum að gefa nú út aukningu á veiðum úr helstu nytjastofnum okkar og fara þar að þolmörkum afrakstursgetu þeirra. Ríkisstjórnin virðist veruleikafyrt, menn þar á bæ virðast með engu móti gera sér grein fyrir því hvert stefnir með sama áframhaldi. Aðilar vinnumarkaðarins fengu eins og aðrir ákveðna von með gerð stöðugleikasáttmálans, þær vonir eru að engu orðnar og ríkisstjórninni verið gefin falleinkun af forystu ASÍ, S.A og fleirum. Ég styrkist enn frekar í þeirri skoðun að fullreynt sé með að þessi vinstri stjórn nái einhverjum tökum á vandamálinu, hún á að fara að fordæmi forsætisráðherra og taka sér frí.
Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Nú eru neyðarboðin greind á nokkrum sekúndum. Þjálfað fólk með fullkominn búnað, fullkomna fjarskiptatækni, tekur á móti neyðarboðum, greinir þau og gerir réttum viðbragðsaðilum viðvart. Það er algjör bylting frá því sem var.
Jón Gunnarsson, ræða á þingi 13. nóv.2007
Freyr og Gummi