|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

15. mars 2009 ..:: Skoðað 1643 sinnum ::.. Umræðan
Úrslit í prófkjöri

Þá er lokið snarpri prófkjörsbaráttu okkar sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi. Baráttan var í senn lífleg og drengileg sem er mikilvægt þegar um er að ræða innbyrðis baráttu samherja. Ég vil þakka meðframbjóðendum mínum fyrrir það hvernig til tókst.

Ég er sáttur við mína útkomu þó vissulega hafi ég stefnt að því að fara eitt þrep upp stigann. Í prófkjörum er ekkert gefið og baráttan hörð sem sést á niðurstöðu úr okkar prófkjöri. Eins og oft er kemur eitthvað á óvart þegar talið er uppú kössunum, svo var einnig nú.  Stuðningsmönnum mínum , vinum og vandamönnum færi ég bestu þakkir fyrir alla vinnuna og traustið. Það var baráttuandi í hópnum og hvetjandi að finna fyrir þeim mikla stuðningi sem við höfðum. Sú hvatning er mér gott veganesti í þá miklu vinnu sem framundan er.

Ég er mjög ánægður með sterkt fylgi forystufólks okkar í kjördæminu, það er mikilvægt atriði fyrir landsfund eftir tvær vikur. Listinn er að mínu mati sterkur, kynjaskipting jöfn og sterkir einstaklingar í baráttusætum. Ég kvíði ekki kosningabaráttunni í okkar kjördæmi með svo sterkan lista. Val margra hefur eflaust verið erfitt þar sem margt frambærilegt fólk var í framboði.

Ég neita því ekki að á síðustu vikum hef ég velt því fyrir mér hvort þessi leið til að velja á framboðslista flokkana sé sú besta sem við höfum. Ég hef efasemdir um það. Þó vel hafi tekist til hjá okkur í suðvesturjördæmi nú er ég á þeirri skoðun að leita eigi annarra leiða við val á lista. Það verður þó að gæta þess að félagsmenn flokksins eigi þar með einum eða öðrum hætti síðasta orðið.

 

Athugasemdir
Rosa
There is a critical shortage of inofrmaitve articles like this.
wvickgkzcls
StceCFxfexaprxppwv
joshuhlman
auto insurance %P cheap health insurance 57981
annachanny
group health insurance 6158 carinsurance 8[ ]
JakeAnti
cheap car insurance rny cheap health insurance iiop
chris
cheap health insurance
affordable health insurance
chris
health insurance

affordable health insurance

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Þau halda ekki þessi rök um ferðaþjónustu sem hóf upp hérna kvartanir sínar árið 2003 og hefur var talað með sama tón öll árin og allt hefur átt að fara hér fjandans til. Hvað hefur gengið eftir af þessum skoðunum? Það hefur ekkert gengið eftir. Þjóðin hefur líka talað ítrekað í þessu máli, nú síðast í skoðanakönnun þar sem 70% fylgi er með hvalveiðum Íslendinga.
Jón Gunnarsson, ræða á þingi 23.maí 2008
opnun skrifstofu