|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

24. október 2008 ..:: Skoðað 709 sinnum ::.. Umræðan
Blásum til sóknar
Það er orðið alvarlegt ástand á atvinnumarkaði og yfir okkur vofir eitthvert mesta atvinnuleysi sem þjóðin hefur séð í áratugi. Í öllu krepputalinu undanfarið hefur margt eldra fólk minnt okkur á að ekki sé hægt að tala um raunverulega kreppu fyrr en atvinnuleysið geri vart við sig. Ástandið verður sennilega alvarlegast á höfuðborgarsvæðinu þar sem uppgangurinn hefur verið mestur á undanförnum árum. Við þessari þróun verðum við að bregðast af fullum þunga með aukinni uppbyggingu orkufreks iðnaðar og eflingu annarra grunnatvinnugreina. Sá augljósi kostur sem við eigum er skynsamleg nýting náttúruauðlinda okkar til lands og sjávar auk sóknar í ferðamannagreinum. Andstæðingar stóriðju hafa í öllum sínum málflutningi talað um aðra möguleika í uppbyggingu atvinnulífs án þess þó að nefna eitthvað haldbært til sögunnar. Við eigum að líta til allra möguleika til að auka fjölbreytni í atvinnulífi okkar og stuðla þannig að því að vera ekki háð tiltölulega fáum uppsprettum. En sú vinna má ekki standa í vegi fyrir eðlilegum vexti þess atvinnulífs sem fyrir hendi er. Hvar værum við stödd í verðmætasköpum þjóðarinnar ef farið hefði verið að tillögum andstæðinga stóriðju og ekkert framkvæmt á þeim vettvangi sl. ár. Aukning álframleiðslu skiptir sköpum í aukningu útflutningsverðmæta á þessum erfiðu tímum.
Atvinnuleysi er eitt það versta sem hendir einstaklinga og fjölskyldur. Ábyrgð stjórnmálamanna er aldrei meiri en nú í að greiða götu fyrirtækja til að efla starfsemi sína og draga þar með eins og mögulegt er úr áhrifum yfirvofandi atvinnuleysis. Í sjávarútvegi verðum við að líta til breyttra aðstæðna og auka kvóta í þorski og mögulega öðrum tegundum. Við verðum að sætta okkur við að það geti haft þær afleiðingar að uppbygging stofnanna verði hægari en við lögðum upp með við núverandi aflamark. Nú þegar viðskipti eru hafin með hvalaafurðir verðum við að gefa út kvóta samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunnar. Hvalveiðar munu þannig geta skilað milljarða útflutningstekjum og haft jákvæð áhrif í uppbyggingu á helstu nytjastofnum sjávar. Í ferðaþjónustu verðum við að leggja áherslu á aukna markaðssetningu. Öflugt net samgagna til og frá landinu byggist á sterkum rekstri flugfélaga og ferðaþjónustufyrirtækja. Við megum ekki við því að það net skerðist. Varðandi stóriðju verðum við að senda skýr skilaboð til umheimsins að hér verði áfram farið í virkjanir til öflunar orku fyrir orkufrekan iðnað. Þeim framkvæmdum sem eru í pípunum verður að greiða leið. Þar getur umhverfisráðherra gefið jákvæð skilaboð með því að breyta ákvörðun sinni um heildstætt umhverfismat vegna framkvæmda við Húsavík. Forystumenn í Hafnarfirði geta einnig í ljósi breyttra aðstæðna hraðað vinnu við að gera mögulega stækkun álvers í Straumsvík. Sú stækkun mun fjölga störfum þar um tæplega 400 auk allra þeirra hliðaráhrifa sem fylgja slíkri stórframkvæmd. Við höfum ekki efni á því að draga lappirnar í þessum málum.
 
Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Á þeim forsendum eigum við að tilkynna Dönum að við viljum fresta komu flugsveita þeirra hingað í næsta mánuði. Við eigum einnig að nota tækifærið og endurskoða á hvaða forsendum við viljum leggja okkar af mörkum innan varnarbandalagsins. Íslendingar eru ekki og verða ekki hvervædd þjóð og því eigum við að horfa mest til borgaralegra verkefna þar sem þekking okkar og reynsla kemur best að notum.
Jón Gunnarsson, greinaskrif 23.feb 2009
fjolskyldan (2)