|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

16. desember 2008 ..:: Skoðað 1216 sinnum ::.. Greinar
Náttúruvernd - Fréttablaðið
Umhverfisráðherra hefur nýverið lagt fram á Alþingi ítarlega þingsályktunartillögu um náttúrurverndaráætlun til næstu 5 ára. Samkvæmt tillögunni er enn fjölgað þeim svæðum í náttúru Íslands sem friðuð skulu. Það er mikilvægt fyrir okkur Íslendinga með alla þá víðfemu villtu náttúru sem við eigum að umgangast hana af virðingu. Komandi kynslóðir þurfa að geta treyst því að geta nýtt ríkar náttúruauðlindir landsins í framtíðinni og mikilvægar atvinnugreinar s.s. ferðaþjónusta byggja að miklu leiti á óspilltri og tignalegri náttúru landsins. Á Íslandi verður náttúrvernd alltaf samspil nýtingar og friðunar náttúruauðlinda okkar til lands og sjávar. Framtíð þjóðarinnar byggist á skynsamlegri nýtingu auðlindanna. Við höfum á undanförnum árum sýnt gott fordæmi í þeim efnum. Fáum þjóðum hefur tekist betur upp við að viðhalda sterkum nytjastofnun hafsins. Á það við um okkar helstu fiski- og hvalastofna. Á landi höfum við þegar verndað u.þ.b. 20% alls landsins, um 19,500 ferkílómetra eða tæpar 2 milljónir hektara. Í samanburði myndi nýting á okkar helstu fallvötnum og háhitasvæðum til virkjanaframkvæmda spanna u.þ.b. 2% af landinu. Einhversstaðar liggur eðlilegt hlutfall milli nýtingar og verndunar og ekki verður annað sagt en að við höfum almennt látið náttúruna njóta vafans. Ekki má gleyma því að margar af okkar náttúruperlum og vinsælir ferðamannastaðir hafa orðið til við virkjanaframkvæmdir. Má þar m.a. nefna Elliðavatn, Bláá Lónið og Kárahnjúkavirkjun. Nú fer umrædd tillaga til umsagnar þeirra aðila sem gagnrýna munu hana m.a. út frá nýtingarsjónarmiðum. Það er þjóðinni mikilvægt að hlustað verði vel á þá gagnrýni og að tillit verði tekið til þeirra sjónarmiða sem þar munu koma fram. Það er ekki síður mikilvægt að þeir sem telja sig til forystu í umhverfismálum hafi í huga mikilvægi nýtingu náttúruauðlinda fyrir efnahag landsins og atvinnusköpun. Það hefur allt of mikið einkennt umræðu um þessi mál að þeir sem telja sig til forystu á þeim vettvangi hafa lítið verið til tals um mikilvæg nýtingarsjónarmið.
Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Það hefur engin þjóð efni á því að nýta ekki náttúruauðlindir sínar.
Jón Gunnarsson, ræða á þingi 20.apr 2008
Bjarni ræðir málin við Gulla málara