Fréttir | Fréttamiðlun
Við stöndum á miklum tímamótum í efnahagsmálum og umræða um framtíðargjaldmiðil landsins er knýjandi . Almennt er óumdeilt að minnkandi tiltrú er á að hægt verði að byggja á krónunni sem framtíðargjaldmiðli þjóðarinnar. Langtímalausn þarf að liggja fyrir í þessu máli áður en langt um líður. Til skamms tíma er hins vegar mikilvægast að stöðva verðbólgu og lækka vexti. Sterkari króna er lykilatriði í því samhengi. Atvinnusköpun er okkur einnig gríðarlega mikilvæg á komandi misserum vegna þess samdráttar sem framundan er í landsframleiðslunni. Ofangreindar hugmyndir taka á öllum þessum þáttum; vinna gegn þrýstingu á krónuna og tryggja fjármögnun mikilvægra verkefna sem eru atvinnuskapandi og framleiðsluhvetjandi. Hér þarf að hafa snör handtök.
Nafn (skilyrt)
Netfang (skilyrt)
Vefsíða
Láta mig vita með tölvupósti ef fleiri skrá hér athugasemdir.