|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

3. nóvember 2006 ..:: Skoðað 1451 sinnum ::.. Umræðan
Jón Gunnarsson og forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, seldu neyðarkallinn í Smáralind í dag

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson og Jón Gunnarsson í Smáralind í dag.

Sala á “neyðarkallinum” hófst í dag en hér er um að ræða fjársöfnun Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem fram fer um allt land. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem er verndari Slysavarnafélagsins Landsbjargar var í Smáralind í dag, þar sem hann seldi neyðarkallinn. Með forsetanum í för var Jón Gunanrsson, en hann er framkvæmdastjóri Slysvarnafélagsins Landsbjargar.

Hver neyðarkall kostar aðeins 1000 kr. Hagnaður af sölunni mun renna til björgunarsveitanna og Slysavarnafélagsins Landsbjargar og verður hann notaður til að efla og styrkja þjálfun björgunarsveitarmanna landsins. Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveitanna enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu.

En þrátt fyrir að meðlimir björgunarsveitanna séu allir sem einn sjálfboðaliðar er rekstur sveitanna dýr. Þjálfa þarf björgunarsveitarfólk, tæki og tól verða að vera tiltæk og í góðu lagi, húsnæði þarf undir búnað og eldsneyti á tækin. Fjármagns er aflað með ýmsum hætti t.d. sölu flugelda, dósasöfnun, gæsluverkefnum, jólatréssölu og ýmsu öðru. Og nú bætist neyðarkallinn við. Það er von Slysavarnafélagsins Landsbjargar að landsmenn taki meðlimum björgunarsveitanna opnum örmum og styðji þannig við bakið á fórnfúsu starfi þeirra þúsunda björgunarsveitarmanna sem eru til taks allan ársins hring þegar samborgarar þeirra þurfa á aðstoð að halda.

Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Í okkar huga sem viljum byggja hér upp öflugt atvinnulíf er þetta svartur dagur vegna þeirra frétta sem við fengum í morgun um að slegið hafi verið á frest þeim framkvæmdum sem voru í pípunum við uppbyggingu stóriðju.
Jón Gunnarsson, ræða á þingi 15.des 2008
fjolskyldan (9)