|  | 21. maí 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

26. október 2006 ..:: Skoðað 805 sinnum ::.. Greinar
Að byrja á réttum enda

UMRÆÐAN að undanförnu um málefni almannavarna á Íslandi hefur verið í þeim farvegi að ekki er einfalt fyrir almenning að gera sér grein fyrir stöðu mála. Þetta eykur á óöryggi fólks, sem er mjög slæmt þegar um er að ræða svo mikilvægt öryggismál. Almannavarnakerfi landsins er jafnvirkt nú og það hefur verið og fylgt er ákveðnu skipulagi, eins og sýnt hefur sig síðustu daga.



Staða málsins um þessar mundir er aðallega til komin vegna þess að byrjað var á öfugum enda. Þeir aðilar sem á sínum tíma tóku til við að undirbúa flutning skrifstofu og samræmingarstjórnstöðvar Almannavarna ríkisins í Skógarhlíð hófu starf sitt án samráðs viðbragðsaðila. Eðlilegra hefði verið að hefja vinnu við endurskipulagningu þessa málaflokks og taka síðan ákvörðun um staðsetningu og skipulag húsnæðis fyrir starfsemina. Það var tillaga Slysavarnafélagsins Landsbjargar á sínum tíma.



Á hinn bóginn er það mjög eðlilegt að færa málefni Almannavarna til Ríkislögreglustjóra, sé tekið mið af þróun mála og stöðu þeirra í dag. Það er rökrétt að sá aðili sem almennt ber ábyrgð á leitar- og björgunaraðgerðum hafi einnig þá ábyrgð með höndum á öðrum tímum, þegar kemur til kasta almannavarna, þar sem áherslan liggur á áætlanagerð, viðbúnaði og eftirliti.



Sú sameiginlega stjórnstöð viðbragðsaðila, sem verið er að koma á laggirnar og staðsett verður í Skógarhlíð, er eitt þýðingarmesta skref til bóta sem stigið hefur verið í skipulagi björgunarmála á Íslandi. Þeir aðilar sem koma munu að þessari stjórnstöð eru Flugmálastjórn, Neyðarlínan, Ríkislögreglustjóri (með Almannavarnir og fjarskiptamiðstöð) og Slysavarnafélagið Landsbjörg. Við þessa breytingu er verið að færa viðbrögð við vá í eina stjórnstöð, sem er að störfum allan sólarhringinn, og þar verða til staðar fulltrúar allra þeirra aðila sem við þurfa að bregðast, eftir því hver verkefnin eru. Þannig erum við að tryggja kerfi þar sem vel þjálfuð starfsemi fer stöðugt fram, tilbúin að taka við auknu álagi, en ekki verið að gangsetja annað kerfi, þegar vá ber að dyrum, sem alls ekki býr að sömu þjálfun.



Aðgerðir síðustu daga eru í fersku minni. Ung kona í alvarlegri nauð inni á hálendinu. Öll tiltæk bjargráð eru sett í gang. Veður- og ferðaskilyrði eru mjög slæm og útlitið því mjög alvarlegt. Við stjórnun á þessum aðgerðum voru 3-4 stjórnstöðvar að vinna. Í stjórnstöð björgunarsveitanna unnu menn að því að koma tækjum og mannafla á vettvang. Stöðugt var verið að spyrja hvað þyrlunni liði. Svörin voru óljós þar til tilkynning kom um að stúlkan væri komin um borð.



Eflaust hefur það sama verið uppi á teningnum í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sem var í sambandi við þyrluna. Þar á bæ hafa menn ekki yfirsýn yfir hvað er að gerast á hverjum tíma hjá björgunarsveitunum. Síðan vantar lögregluna alla yfirsýn yfir málið, en hún fer samkvæmt lögum með yfirstjórn aðgerðarinnar.



Sýnist mönnum þetta vera í lagi? Er einhver sem vill halda því fram, út frá þessu litla dæmi, að ekki sé betra að þessir samstarfsaðilar séu allir á sama stað þegar aðgerðir eru í gangi? Það gildir einu hvort um er að ræða land, sjó eða loft, við eigum öll samleið. Ég get nefnt fjölda annarra dæma ef á þarf að halda.


Hlutur Landhelgisgæslunnar


Það er þó einn ljóður á því að þetta geti talist fullkomin lausn. Í þessa fyrirhuguðu stjórnstöð vantar ennþá Landhelgisgæslu Íslands. Mitt mat er að á meðan stjórnstöð Landhelgisgæslu er ekki hluti af þessari sameiginlegu stjórnstöð sé starfsemi hennar skert að stórum hluta. Gæslan er einn mikilvægasti hlekkurinn í okkar björgunarstarfi og verður því að mínu mati að vera þátttakandi í þessari sameiginlegu stjórnstöð.

Ég sé þessa sameiginlegu stjórnstöð fyrir mér með tvö akkeri sem eru stjórnstöð Landhelgisgæslu og Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra. Dags daglega eru þessar stjórnstöðvar að sinna þeim málaflokkum sem undir þær heyra. Oft eru þær að vinna saman, þegar vá eða slys ber að höndum, sem hin daglega viðbragðsþjónusta leysir. Þegar eitthvað gerist sem aðrir eiga aðkomu að, svo sem björgunarsveitir Slysavarnafélagsins eða Flugmálastjórn, mæta fulltrúar þessara aðila einfaldlega í þessa þjálfuðu stjórnstöð. Sama gerist þegar almannavarnaástand skapast. Þetta væri einfaldlega besta kerfið sem við gætum byggt upp með hagsmuni þeirra í huga sem í neyð eru staddir.



Það hefur komið fram hjá Landhelgisgæslunni að ekki sé hægt að slíta í sundur daglega starfsemi skrifstofu Gæslunnar og stjórnstöðvarinnar. Ég er sammála þessum rökum, enda eru þau aðalástæða þess að Slysavarnafélagið Landsbjörg er tilbúið að flytja úr núverandi höfuðstöðvum sínum, sem kenndar eru við félagið, og flytja í sambýli með öðrum í Skógarhlíðinni.



Landhelgisgæslu Íslands ber verðugur sess í væntanlegari Björgunarmiðstöð Íslands í Skógarhlíð og þar er vettvangur til að leysa þau innri vandamál sem upp kunna að koma.



Morgunblaðið 5. mars 2003.

Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Fátt er erfiðara en þegar börn verða fyrir alvarlegum veikindum. Það eru ekki bara veikindin sem börnin verða fyrir heldur er álagið gríðarlegt á fjölskylduna og komið hefur ítrekað fram í umsögnum og umfjöllunum sem við unnum á meðan málið var til vinnslu í nefndinni hversu mikilvægt það er að mæta þessum hópi með auknum stuðningi.
Jón Gunnarsson, ræða á þingi 11. des 2007
María, Arnar Bogi, Halla, Rósa og Haraldur