Fréttir | Fréttamiðlun
Sjávarútvegsráðherra reynir í Mbl í dag að breiða yfir eigin stefnuleysi þegar hann sendir þeim tóninn sem gagnrýna óheiðarleg vinnubrögð hans.
Rifjum upp að þessi sami ráðherra talaði um að vinna að sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið, hann setti saman sáttanefnd undir stjórn Samfylkingamannsins Guðbjarts Hannessonar. Nokkuð víðtæk sátt var um svokallaða samningaleið innan sáttanefndarinnar. Þá skyldi ítrekað að auðlindin sé eign þjóðarinnar og að úthlutun veiðiheimilda verði til takmarkaðri tíma en áður.
Svo birtist ráðherrann eins og þruma úr heiðskíru lofti með yfirlýsingar um grundvallarbreytingar sem að engu eru í samræmi við þá sáttavinnu sem var í gangi. Er hann eitthvað hissa á því að sjómenn, smábátaútgerðir og aðrir hagsmunaaðilar mótmæli kröftuglega.Sjávarútvegsráðherra er að hafa menn að fíflum um leið og hann gengur gróflega á bak orða sinna. Slík vinnubrögð eiga ekki að líðast.
Ljóst er að Jóni Bjarnasyni hefur tekist að koma íslenskum sjávarútvegi í algjört uppná. Það er til mikils skaða fyrir okkar samfélag. Ein tilkynning um að hann stæði við niðurstöðu eigin sáttanefndar yrði til þess að fjöldi starfa myndi skapast á augabragði út um allt land. Í dag er óvissan slík að allir halda að sér höndum í fjárfestingum og viðhaldi tengdu sjávarúvegi. Þökk sé ráðherra.
Nafn (skilyrt)
Netfang (skilyrt)
Vefsíða
Láta mig vita með tölvupósti ef fleiri skrá hér athugasemdir.