Í ljósi breyttra aðstæðna og þeirrar ákvörðunar
Breta að beita hryðjuverkalögum til að knésetja
íslenskt efnahagslíf tel ég fulla ástæðu til að fresta
komu þeirra hingað til lands, a.m.k. á meðan sú
endurskoðun fer fram. Að mínu mati er óásættanlegt
að þjóð sem beitir hryðjuverkalögum á Ísland
komi hingað til að sinna verkefnum tengdum
vörnum landsins. Jón Gunnarsson, ræða á þingi 11.nóv 2008 |