|  | 7. febrúar 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

11. janúar 2010 ..:: Skoðað 593 sinnum ::..
Yfirlýsing iðnaðarráðherra

Í þættinum Á Sprengisandi sl. sunnudag staðfesti iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, að flótti væri brostinn í þá erlendu aðila sem iðnaðarráðuneytið hefur verið að ræða við um fjárfestingu í íslensku atvinnulífi. Hún hefur á undanförnum mánuðum ítrekað gumað að því í umræðum á Alþingi að horfur væru bjartar íslensku atvinnulífi og árangur af vinnu ráðuneytisins væri handan við hornið. Þessa stöðu skýrir ráðherrann með þeirri óvissu sem Ice Save málið veldur í íslensku efnahagslífi. Sú afstaða ber vott um grunnhyggni. Það er alvarlegt ef ráðherra gerir sér ekki grein fyrir því að ástæðan liggur í þeim skilaboðum sem ríkisstjórnin sendir atvinnulífinu og þeim aðilum sem hafa litið til Íslands sem mögulegan stað fyrir atvinnustarfsemi sína. Á þetta hefur ítrekað verið bent á undanfarna mánuði og virðist ráðherrann ekki hafa skilið alvarleika málsins. Þannig hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar verið iðnir við að leggja stein í götu orkufreks iðnaðar og er þar skemmst að minnast ákvarðana umhverfisráðherra vegna álvers á Bakka og lagningu suðurlínu vegna álvers í Helguvík. Þá voru Samfylkingarmenn í Hafnarfirði í forystu fyrir því að stöðva stækkun álversins í Straumsvík. Nýjustu útspil ríkisstjórnarinnar í skattamálum þar sem sérstök áhersla er lögð á aukna skatta á atvinnulíf er sennilega alvarlegasta aðförin að eflingu atvinnulífs sem hún hefur gert fram að þessu. Forskot okkar hefur m.a. legið í traustri stjórnsýslu og þjóðfélagsgerð. Aðgerðir stjórnvalda virðast miða að því að eyðileggja þann góða árangur sem náðst hefur. Yfirlýsing iðnaðarráðherra sýnir að Ísland er ekki lengur sá áhugaverði valkostur til uppbyggingar atvinnustarfsemi sem áður var. Ice Save málið er eitt það alvarlegasta sem við höfum staðið frammi fyrir sem þjóð. En þessar fréttir iðnaðarráðherra staðfesta að atvinnustefna stjórnvalda hefur beðið hnekki. Það er eitthvað sem við megum ekki við og ef það er staðreynd að stjórnvöld gera sér ekki grein fyrir hvað veldur, verður skaðinn enn meiri en orðinn er. Í málefnum atvinnulífsins sem og í Ice Save málinu verður þessi ríkisstjórn að gera sér grein fyrir fyrirsjáanlegu skipbroti sínu og leiðrétta kúrsinn ef ekki á að fara enn verr.

Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Í ljósi breyttra aðstæðna og þeirrar ákvörðunar Breta að beita hryðjuverkalögum til að knésetja íslenskt efnahagslíf tel ég fulla ástæðu til að fresta komu þeirra hingað til lands, a.m.k. á meðan sú endurskoðun fer fram. Að mínu mati er óásættanlegt að þjóð sem beitir hryðjuverkalögum á Ísland komi hingað til að sinna verkefnum tengdum vörnum landsins.
Jón Gunnarsson, ræða á þingi 11.nóv 2008
mars 040