|  | 7. febrúar 2012
Jón Gunnarsson
Valin síða: Forsíða
UMRÆÐAN

Fréttir | Fréttamiðlun

7. júlí 2009 ..:: Skoðað 735 sinnum ::..
Uggvænleg stefna

Á meðan við deilum um skyldur okkar til að greiða skuldir vegna Ice-save reikninga, eru aðrar og ekki síður alvarlegar aðstæður að skapast. Innlendir jafnt sem erlendir sérfræðingar segja að íslendingar eigi tækifæri til viðreisnar sem geri gæfumuninn. Þar er verið að vitna í auðlindir okkar til lands og sjávar. Viðskiptaráðherra tók undir með sérfræðingum OECD um að nýting náttúruauðlinda til stóriðju sé sá grundvöllur sem viðreisn okkar byggist á. Í ljósi þess er stefna ríkisstjórnarinnar uggvænleg. Í stað þess að leggja í þá nauðsynlegu vinnu að kynna Ísland sem valkost fyrir alþjóðleg fyrirtæki með orkufreka starfsemi, virðast stjórnvöld í skipulagðri herferð gegn atvinnusköpun. Fjármálaráðherra svaraði t.a.m. fyrirspurn minni á Alþingi varðandi uppbyggingu íslensks atvinnulífs á þann veg að ekki væri þörf á frekari stóriðju, lítil og meðalstór fyrirtæki stæðu undir uppbyggingu atvinnulífs til framtíðar. Á sama tíma og hvetja ætti fyrirtæki til mannaráðninga með skattaívilnunum og öðrum hvetjandi leiðum, fetar þessi ríkisstjórn veg aukinnar gjaldtöku og skattheimtu af fyrirtækjum og heimilum. Þessi stefna gerir ekkert annað en að festa atvinnuleysi í sessi. Munurinn á okkur og öðrum þjóðum s.s. Bretum er sá að við verðum að framleiða útflutningsverðmæti og skapa þannig gjaldeyristekjur til að greiða m.a. erlendar skuldir okkar, á meðan Bretar geta einfaldlega prentað sinn gjaldmiðil og gert þannig upp sínar skuldir með tilheyrandi skammtíma verðbólguáhrifum. Aukin nýting náttúruauðlinda í þágu uppbyggingar atvinnulífs er sú leið sem við verðum að feta, um leið og þess verður gætt að halda eðlilegu jafnvægi milli verndunar og nýtingar í náttúru landsins. Ríkisstjórnarflokkunum virðist ómögulegt að átta sig á mikilvægi þessara staðreynda. . Halda menn virkilega að boðun aukinnar skattheimtu uppá 7.5 milljarða í formi auðlindaskatta og eftirgjöf á þeirri viðurkenningu sem náðist gagnvart sérstöðu Íslands í loftlagsmálum, sé til þess fallin að hvetja til aukinnar atvinnustarfsemi. Það er lífsspursmál að frá þessari stefnu verði fallið strax. Við höfum ekki efni á einhverri draumsýn við þessar aðstæður, veruleikinn ar alvarlegri en það.

Athugasemdir

Nafn (skilyrt)

Netfang (skilyrt)

Vefsíða

Enter the code shown above in the box below

Ummæli
Þau halda ekki þessi rök um ferðaþjónustu sem hóf upp hérna kvartanir sínar árið 2003 og hefur var talað með sama tón öll árin og allt hefur átt að fara hér fjandans til. Hvað hefur gengið eftir af þessum skoðunum? Það hefur ekkert gengið eftir. Þjóðin hefur líka talað ítrekað í þessu máli, nú síðast í skoðanakönnun þar sem 70% fylgi er með hvalveiðum Íslendinga.
Jón Gunnarsson, ræða á þingi 23.maí 2008
fjolskyldan (6)